Jájájájá .. haldiði að stelpan ætli ekki að vera róleg um helgina !! .. ég get svoleiðis svarið það sko 
Annars hefur vikan verið súper fljót að líða .. ég skil ekki hvað þetta líður sko .. úfff ... Við áttum að byrja í skólanum á mánudaginn síðasta en það fór alltaf eitthvað úrskeiðis .. þurftum að breyta stundatöflunni og ég veit ekki hvað og hvað ... þannig að við byrjum á mánudaginn næsta á fullu
Fórum að tala við einn kennarann okkar í gær sem kennir okkur ensku og maðurinn talaði ekki ENSKU !! kommon ... hey kallinn minn, þú ert að kenna ensku í háskóla, væriru til í að tala ensku þá eða ?!?!?! ... er þetta eitthvað að vefjast fyrir þér !!! Get svarið það sko
En nóg um kallpunginn ... í þessari viku hefur verið mikill gestagangur á Juan Antón hjá okkur og má þá nefna að íbúðin er full af fólki
Geggjað gaman ! .. ógisslega gaman að fá svona gesti ! Væri samt alveg til í að það væri fullt hús af MÍNUM vinum en neinei, það getur ekki verið svo gott!
Hef verið að upplifa netta heimþrá uppá síðkastið en hún kemur og fer .. held að mér sé bara farið að hlakka svo til að hitta alla, það kveiknar á öllu þegar það koma svona gestir og solleiðis ..
Held þó að það sé voða lítið annað sem ég hef að segja .. ætlaði bara að kasta inn nokkrum línum hérna
Fer að setja inn nýjar myndir þegar ég kemst í stuð 
KISSKISS